This is my life í Júróvisjon!!
0 Comments Published by BenniVals on sunnudagur, febrúar 17, 2008 at 22:41.
Sælt verið fólkið.Það er aldeilis lægðin sem þessi síða hefur verið í enda er ástríða mín sem bloggari fokin í bili. En það er ástæða fyrir bloggi núna, ég ætla aðeins að uppörva fólk. Þannig er mál með vexti að Eurovision eða Evróvisjon er á næsta leyti og er úrslitakvöldið á laugardaginn n.k. Ég er enginn Júróvisjon aðdáandi en þetta kvöld er alltaf svo mikið partý sem gerir þetta skemmtilegt. Aðal ástæðan fyrir þessum yfirlýingum er..að Kæró og co. eru að dansa í atriðinu sem ég ætla hér með að hvetja fólk að kjósa á laugardaginn. Svo virðist sem fólk sé hlynnt flippinu í að láta lag Barða Jóhannssonar vinna og fara út. Held að flippið í fyrra hafi verið gott í bili þó þessi blessaða keppni sé eitt stórt flipp.
Lagið sem fólk á að gjöra svo vel að kjósa heitir This is my life (áður: Fullkomið líf) og er flutt af Friðriki Ómari og Regínu Ósk. HÉR er lagið, og gamla lagið HÉR
Minni á að 2. Þáttur af 12:00 er kominn á www.kvikmynd.is. Hér er slóðin beint á þáttinn: http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=4655
Svo er það bara meistarinn sjálfur 8.desember í höllinni!! Bóbóbó

Mig langar aðeins að ræða hvað fólk getur verið furðulegt. Hér tek ég nýlegt og satt dæmi sem ég vil deila með fólki.
Ég er nú nemandi í Verzlunarskólanum og þar er bílastæðavandamál. Ef þú mætir í skólann seinna en 08:10 þá áttu ekki möguleika á stæði, nema þá kannski í Kringlunni. Amma mín á heima við hlið skólanns, tekur mig sumsé 15 sek að labba yfir í skólabygginguna. Ég hef brugðið á það ráð að leggja bílnum mínum þar ef ég kem í seinni kantinum, sem vill oft verða. Fólkið sem býr þarna er auðvitað ekkert paránægt þegar nemendur eru að leggja í þeirra stæði, sem er svosem skiljanlegt fyrir það fólk sem þarf á stæðum sínum að halda milli kl.08-16.00. (sem eru afar fáir). Ég legg þarna vegna þess að ég hef rétt til þess. Amma mín á engan bíl og á eitt stæði, og hún er búinn að gefa mér leyfi til að leggja fyrir framan húsið sitt þegar ég vil. Hún keypti íbúð og umleið ertu að kaupa stæði. Skólastjóri Verzló hefur margoft brýnt fyrir nemendum að leggja ekki í stæði fólksins í kring. Gott hjá honum.
S.l. daga þegar ég er búinn að vera leggja þarna er sextugur maður í "næstu blokk" að fylgjast með. Hann hefur núna tvisvar rekið hausinn út um gluggann sinn á þriðju hæð og öskrað, skipað mér að færa bílinn. Ég svara honum alltaf kurteisislega en og segi honum að ég muni alls ekki færa bílinn því ég má alveg vera þarna, án frekari útskýringa.
Í gær ofbauð honum greinilega vegna þess að ég hlýddi manninum ekki. Þegar ég er að stíga út
úr bílnum er hann búinn að hlaupa út og labbar á móti mér og byrjar að æpa á mig. "Viltu færa bílinn". Ég svara honum mjög kurteisislega og segi honum hvernig staða mála er. En hann vill sko ekki trúa mér og svarar mér á þann veg með spurningunni "Já eiga bara ekki allir nemendur í Verzló ömmur hérna" og blótar og kallar mig öllum illum nöfnum. Ég kærði mig ekkert um það og ætla að labba af stað uppí skóla. Þá vill hann fara mér upp til skólastjórans og tala við hann um þetta mál og ég er sko alveg til í að koma með honum. Nei þá bregður hann á það ráð, sextugur sköllóttur maðurinn að hrinda mér og ýtir þar af leiðandi í öxlina á mér þannig að ég datt ekki en greinilega var mér stuggað rækilega og reynir hann svo að standa fyrir gangstéttinni að skólanum, svo ég komist bara ekki í skólann fyrr en bílinn er færður. Þarna ofbauð mér hreinilega og fór að krauma í mér reiðin að maðurinn skyldi í fyrsta lagi ekki trúa mér, í örðu lagi öskra á mig, í þriðja lagi ýta mér, og svo í fjórða lagi í raunni að skipta sér af því að ég sé að leggja fyrir framan aðra blokk en hans. Þar sem hann öskraði á mig þá ákvað ég að æpa soldið á hann og voru þarna snörp orðaskitpi og ég ákvað að láta ömmu mína slást í leikinn og rölti yfir til hennar og greindi henni frá stöðu mála. Amma nývöknum kemur út í gluggann og lætur manninn heyra það, enda stuggaði hann við barnabarninu sínu á leið í skólann. Hann var ekki hættur þegar ég kom út frá ömmu og fór það mjög í taugarnar á mér þar sem ég var svo með hundraðprósent rétt í öllu.
Hann hélt áfram að öskra og ég get svarið það þetta var eins og í bíómynd, gott ef fólkið í blokkunum í kring hafi bara ekki vaknað við þessi ólæti.
Ég var orðinn of seinn í skólann og ég svoleiðs nennti þessu ekki og hætti allri prúðmennsku og spruði manninn fyrst hvort hann væri nú ekki viss um að hann væri bara.."þriggja ára" og svo þegar hann hætti ekki að tauta þa benti ég honum pent á það að hann væri "mjög afskiptasamur maður", einnig benti ég á að hann þyrfti að finna sér e-ð betra að gera. Þessi lokaorð voru til þess að hann rölti í reiði sinni heim til sín og mögulega hringt í skólastjórann, en svosem ekkert grætt á því.
Ég spyr, hefur sumt fólk ekkert betra að gera í lífinu? EN að passa stæði nágranna sinna. Amma mín býr þarna og henni er alveg sama hvað á sér stað á planinu hjá henni meðan hún sefur værum blundi. Þetta er bara svo glöggt dæmi! Sumt fólk er snarbilað. Sértaklega gamalt fordómafullt, afskiptasamt og einmana fólk. Að fólk skuli nenna að bíða eftir því að "bösta" krakka sem eru að leggja í stæði sem þau mega og mega ekki leggja í og að fara út og stugga við, öskra og missa sig yfir ungnum saklausum menntaskólanemum. Þessar týpur eru allsráðandi. Ég hef unnið afgreiðslustörf og þar hittir maður mikið af svona fólki sem finnst allt agalegt sem maður gerir. Man það svo vel hvað maður var oft nálægt því að svara fólki á þann máta sem fólkið talaði við mann... en það mátti ekki skaða ímynd fyrirtækisins.
Ég tel mig hafa komið mjög vel út úr þessu með manninum í næstu blokk við Verzló því ég var mjög kurteis. Innst innan í mér blundaði hnefinn sem ég hef verið að rækta í World Class.
Ég spara hann fyrir e-ð gáfulegra. Ef hann skyldi reyna að bregða fyrir mér fæti aftur þá skal ég nú gera allt annað en að vera kurteis. Næst ef hann kemur út í glugga ætla ég bara að gefa honum kurteisilegan putta (fokkjú).
Takk í dag

Þarf vart að segja meira
1 Comments Published by BenniVals on miðvikudagur, september 26, 2007 at 17:16.Spurning um að taka sér pásu ?